Boðað er til heilbrigðisþings þann 2. nóvember nk.
frá klukkan 9 til 16 á Grand hótel, Reykjavík

Heilbrigðisþing verður haldið þann 2. nóvember nk. frá klukkan 9 til 16 á Grand hótel, Reykjavík. Markmið þingsins er að skapa vettvang fyrir kynningu og umræður um drög að nýrri heilbrigðisstefnu, stefnu fyrir íslenkt heilbrigðiskerfi til ársins 2030. Þingið er öllum opið og eru allir sem láta sig heilbrigðismál varða hvattir til að taka þátt. Til að tryggja aðgengi allra landsmanna að þinginu verður dagskrá og umræðum streymt á slóðinni www.heilbrigdisthing.is þar sem einnig verður hægt að senda inn spurningar og ábendingar.